Þerapía
Wednesday, November 8th, 2006Þegar ég var c.a. 8 ára sá ég myndina The Man Who Fell to Earth með David Bowie í sjónvarpinu. Ég veit ekki af hverju mér var leyft að horfa á hana, hvort það hafi verið með vilja eða af hugsunarleysi foreldra minna. Hvað sem því líður fékk ég að horfa á hana, að því ég held til enda. Mér eru nokkur atriði minnisstæð, sérstaklega eitt, þ.e.a.s þegar aðalhetjan opinberar sig sem geimvera fyrir kvenhetjunni, sköllóttur og með kattaraugu. Ég fékk svo rosalegar martraðir næstu daga á eftir að ég svaf nánast ekki neitt. Í minningunni varaði þetta örugglega í viku.
Ég hef aldrei séð myndina eftir þetta, þrátt fyrir að hafa ákveðið það fyrir þónokkuð mörgum árum síðan að sjá hana, bara til að komast að því hvað þetta er örugglega kjánaleg og léleg mynd. Hrein þerapía, skipta þessari ógnvekjandi æskuminningu út fyrir raunveruleikann.
Ég mundi eftir þessu loforði í gær og fann torrent af henni. Sjáum hvað setur.
Ef ég sef ekki í viku er það vonandi þess virði.