Dómara vikið úr starfi vegna samskipta við ósýnilega dverga

Áhugaverð frétt á mbl.is

Bráðfyndin frétt. Það fyrsta sem manni dettur í hug er að maðurinn sé snargeðveikur og veruleikafyrrtur og það eðlilegasta í heimi að víkja honum úr starfi, enda engan vegin hæfur til að gegna dómarastöðu.

En hvað er maður snýr þessu við og spyr: hversu margir dómarar lýsa því yfir að þeir fái hjálp að ofan, að þeir fái reglulega ráð frá Guði almáttugum þegar þeir glími við erfið sakamál? Myndu þeir vera dæmdir geðveikir og reknir úr embætti?

Hver er eiginlega munurinn?

One Response to “Dómara vikið úr starfi vegna samskipta við ósýnilega dverga”

  1. Krilli Says:

    Þetta er leiðindamál. Þeir Armand, Luis og Angel komu í ferð til Íslands að skoða uppruna sinn. Ég gaf þeim kaffi eftir að þeir höfðu skoðað Álfhól og spjallaði við þá um þetta. Þeir eru miður sín yfir þessu, og hefðu kosið að fara huldu höfði frekar en að valda þessu uppnámi heima hjá sér.

Leave a Reply