Archive for April, 2006

Smá lífsmark

Tuesday, April 25th, 2006

Bara til að fólk haldi ekki að ég sé dauður (ég hef margoft haldið því fram að ég sé vonlaus bloggari) ætla ég að henda inn því helsta sem ég hef uppgötvað nýlega í bloggheimum:

Ingó mælir með:

  • Delusion of Schleif Animatorinn Jason Schleifer. Þið ykkar sem eigið LOTR extended edition trílógíuna og hafið horft á aukefnið kannist kannski við hann sem animatorinn úr Gollum-kaflanum.
  • Leonardo Production blog (Plog?) um animeraða stuttmynd um Leonardo Da Vinci. Jim Capobianco, sem er storyboard-teiknari hjá Pixar, ákvað að nota allan sinn frítíma í að gera handteiknaða stuttmynd um Leonardo. Hann margtekur það fram að honum finnist það engan vegin góð nýting á tíma.
  • The Daily Show Jon Stewart er maðurinn! Sorglegt að dauðyfli eins og Jay Leno fái ekki að víkja úr íslenskri sjónvarpsdagskrá fyrir þessum snillingi; klár og drepfyndinn.
  • Neil Gaiman Þyrfti kannski líka að fara að lesa meira eftir þennan mann en þessa einu sem hann skrifað með Terry Pratchett. Virðist ætla að verða fyrsta "celeb-bloggið" sem ég endist í að lesa. Reyndi einu sinni að lesa David Byrne en gafst fljótlega upp, allt of miklar langlokur. Áhugavert stöff mikið til en ef ég þarf að eyða meira en kortér af vinnutíma í stakar færslur á bloggi er ég fljótur að gefast upp og byrja á einhverju skemmtilegra.