Archive for December, 2005

ðe most bjútifulest kontrí...

Monday, December 19th, 2005

ÍSLAND, ÍSLAND, HANN SAGÐI ÍSLAND‼

Nýta sér tæknina...

Wednesday, December 7th, 2005

Lenti í smá árekstri um daginn. Afleiðingarnar voru bara smávægilegar rispur á báðum bílum en rifrildið sem honum fylgdi endaði niðri á löggustöð þar sem það var tekin skýrsla af mér og hinum bílstjóranum, þar sem hvorugur okkar vildi gefa sig. Ég beið alltaf eftir því að tryggingafélagið hefði samband, en eftir frekar langa bið hafði ég sjálfur samband. Þeir voru búnir að líta yfir þetta og merkja mér í óhag, sem minn sætti sig að sjálfsögðu ekki við. Ég kíkti við hjá tryggingafélaginu og lét þá skoða skaðann og segja mína sögu, enda enginn vafi í mínum huga að ég var í rétti.

Þegar tjónagaurinn sagði mér að skrifa mína hlið niður og teikna afstöðumynd, ákvað ég að nota mér tæknina og settist niður við AfterEffects í hálftíma og bjó til þetta hérna:

Smella hér til að sækja Windows Media video, 250kb

Þetta var í síðustu viku. Ég er ekkert búinn að heyra neitt meira, en svo var ég að spjalla við vin minn, starfsmann sama tryggingafélags, á MSN áðan:

Ógni says:
hey, **** sagði mér að þú hefðir séð árekstraranimationina mína.
Trygg.starfsm. says:
já, heldur betur… ég fékk hana í fjöldapósti innanhús með söbjectinu :"bara ef allar tjónaskýrslur væru svona"
Ógni says:
:-D

Jólaóskalisti

Wednesday, December 7th, 2005

Það eru margir að blogga óskalistum þessa dagana og hópsálin ég verð að gera eins og allir hinir ;):

  • Geisladiskar hef ekki eignast nýjan svoleiðis í háa herrans tíð. Langar í allt sem öðrum finnst spennandi og finnst að ég eigi skilið að kynnast. Queens of the Stoneage er t.d. hljómsveit sem mér finnst geðveik en sem ég á lítið sem ekkert með, fyrir utan staka mp3. Surprise me! :)
  • DVD myndir Ansi mikið af eigulegu dóti sem mig langar í. Ég er sucker fyrir góðum teiknimyndum, Pixar og Miyazaki eru safe bet. Ég á reyndar Incredibles á DVD og svo er verið að leita að Toy Story 1/2 DVDinum mínum úti í Þýskalandi… kemur vonandi í leitirnar fyrr eða síðar. Svo langar mig líka í Lord of the Rings og Star Wars trílógíurnar. Formúlan er svona: Góð DVDmynd með plenty af behind the scenes aukaefni og þá langar mig í hana ;). Hérna er svo listi af myndum sem ég hef næstum keypt upp á síðkastið á Amazon.com:
Frank and Ollie
Dream on Silly Dreamer
… bæti fleiru við eftir því sem ég man
  • Bolir Ég fíla alltaf að fá einhverja cool t-boli.
  • Bækur Les allt of lítið þessa dagana. Gaman að fá ástæðu til að byrja aftur :)
  • Kokkabækur Vantar eitthvað spennandi til að auka á eldamennskuúrvalið
  • Wacom teiknibretti Vantar lítið wacom bretti fyrir lappann.

Lengi listann ef mér dettur eitthvað fleira í hug.