Eyrnabólga á Hróarskeldu
Tuesday, June 28th, 2005Ein stutt færsla af netkaffi á hróarskeldusvæðinu.
Kom hingað í fyrrakvöld, ansi seint eftir að vélinni seinkaði um rúman klukkutíma. Náðum lest til Hróarskeldu en þurftum að labba úr bænum með allt draslið.
Eyddum svo gærdeginum í Köben á rölti um bæinn góða veðrinu. Sól og blíða.
Tókst að ná mér í heiftarlega eyrnabólgu á föstudagskvöldið áður en ég fór út. Hún var það slæm að hlustin hreinlega sprakk undan þrýstingnum og ákkurat núna er vinstra eyrað eins og það sé búið að troða góðum slatta af bómull inn í það. Stórkostleg tímasetning! Vona að ég geti heyrt eitthvað af þessum hljómsveitum sem ég ætlaði að sjá…
