Archive for July, 2004

3 vikur heima

Sunday, July 25th, 2004

Það eru þrjár vikur síðan ég kom heim á klakann. Ótæmandi heimþráin sem hrjáði mig áður en ég lagði af stað löngu farin, enda viðbúið að hún endist ekki lengi, og í staðinn komin svona góð þægindatilfinning. Hingað til hefur ekki tekið langan tíma að byrja að pirra mig á öllu því neikvæða sem einkennir heimahagana en það virðist öðruvísi í þetta skiptið. Ég held reyndar að það hafi mest með það að gera að ég er búinn að kynnast fullt af nýju stórskemmtilegu fólki, farinn að sækja nýja skemmtistaði og svo skemmir ekki að aðal maðurinn skuli vera fluttur í töltfjarlægð frá mér og öllu sem skiptir máli.

Ég er að vinna eins og Mófó og það í lóðaframkvæmdum hjá BYGG. Ég vinn s.s. við að ganga frá lóðum við nýbyggingar en það felur aðallega í sér að planta trjám og moka og raka mold, sandi og skít. Þetta mun vera í fyrsta skiptið í hátt í 10 ár sem ég púla útivið og er sosem ekkert nema gott um það að segja, útaf fyrir sig. Búinn að ná mér í góða sveitamannabrúnnku (bara brúnn í framan, á hálsinum og á framhandleggjunum, handarbökin eru alltaf falin í hönskum þannig að þau eru náhvít sem og restin af líkamanum) og ég er allur að buffast upp. Allavegana er ég ennþá, eftir þriggja vikna púl að vekja löngu gleymda vöðva all harkalega úr værum blundi. Mér finnst samt einhvernveginn að tímanum mínum og orku gæti verið betur eytt í eitthvað sem gefur betur í aðra höndina, veitir mér einhverja nothæfa reynslu og gerir mér kleyft að lifa einhverju lífi utan vinnunar. Þurfandi að vakna fyrir 7, vinna til 6 og vera of búinn á því á kvöldin tli að gera nokkurn skapaðann hlut, er ekki mikið líf í mínum huga. Þetta breytist kannski flótlega, ég er að skoða þetta allt saman.