Archive for January, 2004

Feika'ða

Tuesday, January 27th, 2004

Hérna er smá sýnishorn af heilabrotum dagsins. Ég er að undirbúa lýsinguna fyrir örmyndina sem er í bígerð. Ef ég byggi annaðhvort yfir takmarkalausum tölvukosti, þolinmæli eða tíma myndi ég nota tækni sem heitir Global Illumination, sem reiknar út hvernig ljós sem fellur á hlut, endurkastast af honum og lýsir upp aðra hluti í nágrenninu. Lítur mjög fallega og eðlilega út ef maður nær í fyrsta lagi að stilla það rétt (sem tekur geðveikan tíma, milljón stillingar) og í öðru lagi ef maður nennir að bíða heila eilífð eftir að myndin renderist (lokaútreiknist). Þess vegna tók ég þá ákvörðun að gera eina prufumynd í GI og herma svo eftir ljóseffektinum með mörgum ljósum. Þetta hefur þá kosti í för með sér að spara mér ógrynni af tíma í lokarenderingu og svo hef ég líka soldið meiri stjórn á ljósinu. Ég geri ráð fyrir að einn rammi með þessari aðferð taki kannski 5-10 mín, í staðinn fyrir 30-40 mínútur með GI aðferðinni. Hérna eru myndirnar, önnur er testmyndin sem ég gerði fyrst, hin er þessi "feikaða". Þið þurfið að smella á myndina til að komast að því hvor er hvað ;-)

image

Hvor er hvað?

Ég læt líka fylgja með mynd sem er með sömu stillingar og GI myndin, en með slökkt á GI effektinum, þá sjáiði hvað hann hefur mikið að segja. Allt ljós sem sést utan við þetta háljós endurkastast þaðan.

image

Jetlag...held ég.

Thursday, January 15th, 2004

Fáránlegt, það er núna liðin vika síðan ég kom heim og ég er fyrst núna að upplifa einhverjar svefntruflanir af viti. Kannski bara af því að ég er búinn, með nettri hjálp þotuþreytunnar, að snúa sólarhringnum við. Sofnaði klukkan að verða 5 í nótt eftir að hafa horft á restina af ER safninu sem mamma var svo góð að færa mér í jólafríinu (takk mamma!). Svo var það á fætur klukkan 8 og í vinnuna.

Ekkert að gera frekar en venjulega, og ég er að spá í að nota tímann og fylla í einhverjar af eyðunum í ferðasögunni, á meðan þetta er mér að einhverju leiti í fersku minni.

Jólin voru afslöppuð, enda vel heppnuð fjölskyldujól í alla staði. Boston er frábær borg, kannski ekki beinlínis einhver suðupottur og djammpleis, bara mjög "næs". Snyrtileg og afslöppuð, kannski eitthvað sem maður fer að kalla leiðinlegt eftir ákveðin tíma, en ég náði ekki því stigi. Hentaði s.s. ágætlega! Cambridge, þar sem við bjuggum, er líka afslappaður háskólabær. Örugglega aðeins meira líf þar á flestum öðrum árstímum, enda flestir stúdentar farnir heim yfir jólin. Hefði ekkert á móti því að kíkja þangað að sumri til einhverntíman. Við fórum í þær skoðunarferðir sem veður og heilsa buðu uppá, fórum t.d. í dýragarðinn í Boston og skoðuðum ófáar verslanamiðstöðvar ;-) Heilsan var ekki uppá marga fiska á tímabili, náði mér í heiftarlegt kvef (eða flesnu…var bara með hita í sólarhring þannig að ég held að þetta hafi frekar verið kvef) sem ég er í raun frekar ný laus við. Það þýddi sem betur fer bara eins dags rúmlegu sem fór að sjálfsögðu í mega channelsurfing, enda var íbúðin sem við vorum með í láni með kapal og úrvalið var vel yfir 50 stöðvar. Auglýsingar eru væntanlega hvergi meiri plága en í ammríku og mjög áberandi hvað það er gert ráð fyrir lágri greindarvísitölu áhorfendanna!

Áramótin voru líka með rólegra móti. Eyddum deginum í miðborg Boston. Þar er hin svokallaða "First Night" miðborgarhátið allan daginn fram til miðnættis, með alls konar uppákomum. Sáum risa flugeldasýningu klukkan 7, en það var rakettuskammturinn þessi áramót ;-). Svo var haldið heim og borðað. Gamla settið var svo skilið eftir með krakkana og við Ásta og Kjartan fórum á smá pöbbarölt, auk þess sem við fórum á niðurtalningu á torgi í Boston. Við náðum þangað rétt fyrir tólf og bjuggumst við svaka mómenti, ala Times Square (10…9…), en fengum í staðinn örstutt 3 sekúntna eitthvað, 321búið. Frekar fyndið! Eftir að vera búin að fullvissa okkur um að þetta væri örugglega allt sem við fengjum, röltum við um hálftómar götur borgarinnar og inn á einhvern kínverjabar, gáfumst upp á honum eftir einn drykk og héldum inn í Cambridge. Þar var tekinn stuttur rúntur og farið svo heim.

New Yorkar ævintýri ferðarinnar byrjaði ekki vel, en meðleigjandinn hennar Furu, sú sem átti að redda mér lykli, var búin að týna gemsanum sínum, eina real-time samskiptamátanum, og ég náði engu sambandi við hana. Eftir að vera búin að ná í vinkonu hennar sem gat fullvissað mig um að hún væri í bænum, var sendur einn email og haldið af stað út í óvissuna. Ferðamátinn var rúta sem fer á klukkutíma fresti milli kínahverfa Boston og New York, hin eina sanna Fung Wa rúta. Kostaði litla 10$, sem gefur til kynna lúxusinn, var samt ekkert verri eða betri en flestar rútur (ég sá pínu fyrir mér 30ára gamlan skrjóð og æpandi litla kínverja með hænsni og snáka í búrum). Sem betur fer beið mín email frá meðleigjandanum á fyrsta internetkaffihúsi New York borgar með góðum leiðarvísi. Eftir að hafa villst dáldið gengum ansi flókið og óskýrt neðanjarðarlestarkerfi New York borgar komst ég á leiðarenda. Meðleigjandinn reyndist þvottekta ameríkani, með tilheyrandi hamborgararassi og alles! Sem betur fer reyndist hún líka vera klár, liberal og gagnrýnin í skoðunum og mjög gaman að chatta við hana. Hún gaf mér líka smá smjörþef af næturlífi east village hverfissins. Fyrsta kvöldið hitti ég líka Ámunda, hálfnorska frænda minn, sem ég hitti að meðaltali á 2ja-5ja ára fresti. Hann var í bænum yfir áramót að chilla með kærustunni. Við fórum á geðveikan pizzastað í litlu ítalíu. Pínulítil búlla sem er búin að vera í eigu sömu fjölskyldunnar í meira en 100 ár, ekta svona New York insider place ;-)

The rest is well recorded history…

ferðasaga 7# staður: Bernhard-Lichtenberg-Str. 14, Berlin Þýskalandi stund: 07.01.04 17.15.

Wednesday, January 7th, 2004

Kominn heim!

Tek allt til baka sem ég hef áður sagt um svefnleysi í flugvélum! Setti í mig eyrnatappa í fluginu áðan, milli London og Berlínar og svaf eins og ungabarn mest alla leiðina. Eina sem hrjáði mig eftirá var massífur hálsrígur sem ég finn ennþá leifar af ;)

Veðrið í Berlín er það ógeðslegasta sem ég hef komist í kast við á ferðalaginu: skýjað, kalt, rigning og slabbleifar af snjó á götunum. Pumaskórnir sýndu ágæti sitt enn og aftur, labbaði frá lestarstöðinni og heim og er rækilega votur í fæturnar.

Núna er málið að fara í bað og setja svo upp Homeworld 2 leikinn sem ég keypti mér úti, og taka góða sessjón. Svo sé ég til hvort ég hef orku í að plata Flo með mér í einn bjór á eftir. Ég má helst ekki sofna fyrr en seinna í kvöld, einn bjór væri góður undirbúningur undir það ;)

ferðasaga 6# staður: Heathrow flugvöllur, London UK stund: 07.01.04 kl 11.50

Wednesday, January 7th, 2004

Djöfull eru flugvellir leiðinlegir staðir!

Liður samt eftir atvikum vel, naði að sofa í 2 tíma á leiðinni hingað þrátt fyrir ítrekaðar fyrri yfirlýsingar um að vera ófær um slikt. Verð samt ad reyna að sofna ekki fyrr en seint í kvöld ef ég á að ná að rétta sólarhringinn af.

Er að reyna að lesa, en ég er að lesa Ilminn eftir Patrick Suskind á þungri þýsku, sem er ekki gott eftir svona lítinn svefn. Ég tek þetta i skorpum, þá tekst það ;)

læt í mér heyra þegar ég er kominn á leiðarenda

ferdasaga #5 stadur: 545 E 5th Street, New York NY USA stund: 04.01.2004 05:18 pm

Sunday, January 4th, 2004

Búinn að vera 2 daga hérna

Dagurinn i gær var mjög fyndinn. Fór rétt um hádegi i göngutúr og ákvað að byrja á að skoða ground zero. Rölti þangað niður eftir og villtist á leiðinni i gegnum eitt frekar skuggalegt hverfi á bökkum Hudson árinnar, en slapp ómeiddur og með allar mínar eigur. Svo kom ég að grunni WTC og skoðaði mig um. Ég reyndi að taka myndir en það er einhvernveginn ekki mikið að mynda, sérstaklega af því að þetta er svo stórt svæði og lítur líka bara út eins og byggingasvæði. Það sem maður upplifði og er ekki svo auðvelt að festa á filmu er stærðin og það er erfitt að ímynda sér hvernig þetta gat gerst með svona stórar byggingar.

Ég var búinn að rölta smá spotta meðfram minninga"veggnum" (sem er meira grindverk en veggur) þegar mér er litið til hliðar og viti menn: við hliðina á mér stendur Ásta systir mín og fjölskylda‼

Vá! Alveg með surrealistískari mómentum ævi minnar! Varla sólarhringur siðan ég kvaddi þau i Boston og svo hittir maður þau algerlega af tilviljun í New York‼ Ég vissi reyndar að þau væru að spá i að koma til New York þennan dag, en af þvi að ég er algjörlega símasambandslaus og í mjög stopulu netsambandi gerði ég ráð fyrir að við myndum engan vegin ná að hittast og spáði eiginlega ekkert meira i það. Ég væri forvitinn að vita tölfræðilegar líkur á að svona hlutir geti gerst og efa það ekki að það séu yfirgnæfandi meiri likur á að vinna í lottói eða verða fyrir eldingu. Þad tók smá tima að jafna sig á þessu súra mómenti og ég var eftir mig allan daginn, en þegar versta sjokkið var liðið hjá lá leiðin á næsta maggadóna og svo upp Empire State. Við vorum nógu lengi i röðinni til að ná rétt i skottið á sólarlaginu og svo alvöru Manhattan Skyline (muniði, Aha?) að kvöldi til. Ég tók nokkrar ansi laglegar myndir sem ég verð að reyna að koma fyrir almannasjónir bráðum. Eftir það kíktum við á Times square sem er ekki lítið skrítið pleis. Erfitt ad lýsa tilfinningunni að standa á miðri umferðareyju á þessu geðveikt þrönga torgi með endalaus ljósaskilti hvert sem augað eygði og reyna að imynda sér hversu erfitt það hefur verið að tæma það fyrir senuna í Vanilla Sky‼ Svo var étið á Don Giovannis, italska restaurant nr 2 ferðarinnar (át pizzu með Ámunda frænda i fyrradag) og át hreint út sagt geðbilað pasta, besta tómatrjómasósa sem ég hef smakkað. Svo var haldið heim á leið enda áttu Ásta, Kjartan og co eftir að keyra 4-5 tíma til Boston.

Um kvöldið fór ég aðeins á smá pöbbarölt með Turi, stelpunni sem býr með Furu, en Fura var svo örlát að lána mér íbúðina sína meðan ég er hérna.

Í dag fór ég svo i langan göngutúr, sá Rockafeller center og Central Park og komst að því hvað Pumaskórnir sem ég keypti í Boston halda geðveikt illa vatni! :-(

ferðasaga #4 staður: Einhversstadar i Chinatown, New York NY USA stund: 02.01.2004 06:24 pm

Friday, January 2nd, 2004

Kominn til NY

Tók kínversku Fung Wa rútuna frá chinatown Boston og er kominn til chinatown NY, tók 5 tíma.

Ég er búinn að fá leiðbeiningar á tölvupósti sem ættu að koma mér þangað sem ég gisti. Þá er að sjá hvernig stórborgarattarskynið plumar sig.

Geðveikt skrítið að upplifa svona litið kína i miðri NY. Allt bæði á kínversku og ensku, sem betur fer fann ég netkaffi með amerískum lyklaborðum ;-)