Archive for December, 2003

ferðasaga #3 staður: 24 Peabody Terrace, apartment 710 Cambride Ma USA stund: 22.12.2003 04:56 pm

Monday, December 22nd, 2003

Fjórir dagar liðnir og ég er búinn að jafna mig á þotuþreytunni. Það tók samt alveg þrjá daga. Fyrstu tvo var maður glaðvaknaður klukkan 7 og orðinn úrvinda af þreytu klukkan 5 um eftirmiðdag.

Restin af familíunni kom svo í gær. Við fáum lánaða íbúð hérna í nágrenninu til að hýsa allt liðið. Dagarnir eru búnir að fara í rólegt rölt um nágrennið. Við skoðuðum t.d. Harvard Business School, sem er ekki af verri endanum, enda flottasti sinnar tegundar í heimi. Bærinn hérna er allur byggður í kringum háskólann, kampus- og stofnanabyggingar hvert sem litið er.

ferðasaga #2 staður: 24 Peabody Terrace, apartment 710 Cambride Ma USA stund: 19.12.2003 09:15 am

Friday, December 19th, 2003

Kominn á leiðarenda.

Kom í gærkvöldi klukkan 21.10 að staðartíma. Klukkan hjá mér var hins vegar 4 að nóttu. Svaf ekki í flugvélinni frekar en venjulega, en naut þess í stað lúxussins sem maður fær að kynnast um borð í Boeing 777 frá British airways; sjónvarpsskjár á hverju stólbaki, 18 sjónvarpsrásir og allt sýnt tvisvar. Horfði á Seabiscuit og Terminator 3.

Þegar maður flýgur til Bandaríkjanna þarf maður að fylla út þennan fræga spurningalista, þið vitið: "are you or have you ever been a member of the communist party?". Þá spurningu vantaði reyndar en í staðinn voru spurningar eins og: "Have you ever been involved in acts of terrorism", "Is the purpose of your trip to engage in acts of illegal or immoral behavior", "Were you, between 1933 and 1945, involved in genocide or any acts connected to Nazi Germany". Það var auðvitað skýrt tekið fram að ef maður gerði einhverja vitleysu, gat maður búist við sekt og löngum töfum. Ég sá auðvitað fyrir mér sálfræðilegar niðurifsyfirheyrslur og stripsearch at gunpoint! Ég fattaði í miðjum kliðum að ég hafði ekki hugmynd um adressuna hjá systur minni hérna úti, eitthvað sem er alveg fatalt af því að maður verður að gefa upp gilda dvalaradressu þegar maður kemur inn í landið. Það þýddi að þegar ég lenti þurfti að kalla Ástu systur upp til að redda því. Svo var það stutt annarar gráðu yfirheyrsla "What is the purpose of your stay?" "What is your relatives occupation here" o.s.frv.

Ég slapp!

Suckers!

ferðasaga #1 staður: Picadilly Circus, London. stund: 18.12.2003 13:14

Thursday, December 18th, 2003

Kominn til London.

Drullutimbraður!

Ég og Filippo fórum á bar i gær og drukkum allt of mikið rauðvin. Þetta var ekki alveg planið sko! Flugið hingað var þess vegna dáldið súrt, sérstaklega i flugtaki og lendingu, innra eyrað soldið laskað vegna áfengisneyslunnar og allar svona turbulence hreyfingar fóru ekki vel i mig.

Næsta mál á dagskrá er ad eyða næstu 3-4 tímum i þessari borg án þess að deyja úr leiðindum eða klára allan peninginn. Ég held að þetta siðarnefnda verði erfiðara, ég er ekki búinn að gera rassgat, ein neðanjarðarlestarferð, einn subbuborgari og hálftíma internet og 20€ strax farnar (tæplega 2000kall). Maður þarf greinilega að passa sig. London sucks away my money!

þangaðtilnæst

Berlin kvödd

Wednesday, December 17th, 2003

Síðasta færsla frá Berlín í bili. Flýg til Boston í fyrramálið, stoppa í London í 6 tíma og verð kominn kl 21.10 að staðartíma til Boston. Langt ferðalag!

Ætla að vera duglegur að posta ferðasögum og vona að ég sé ekki að lofa upp í ermina á mér eins og svo oft áður ;-)

image

Gleðileg jól

Síðasti séns.

Sunday, December 14th, 2003

Ég er búinn að taka ákvörðun.

Ég ætla að fjarlægja gestabókina af síðunni minni á miðvikudaginn (17.des) ef það verða ekki komnar fleiri færslur þangað inn í millitíðinni. Mér finnst frekar tilgangslaust að hafa fídus í gangi sem enginn hefur notað í 4 mánuði. Mig langar samt endilega til að þið látið í ykkur heyra og fyndist það synd að taka gestabókina niður útaf eins banal ástæðu og notkunarleysi.

Verndið málfrelsið, bjargið gestabókinni!

Kaltkalt!

Thursday, December 11th, 2003

Þegar ég segi fólki að Berlín sé kaldari en Ísland trúa mér fæstir, en þetta er staðreynd! Það er ekki einu sinni frost og nefið á manni er við það að detta af! Rakinn í loftinu hérna veldur því að kuldinn smýgur inn að beini! 2-3 stiga hiti hérna er eins og 10-15 stiga frost á Íslandi. Brrr!

RIOT!

Wednesday, December 10th, 2003

Verð að segja ykkur hverju ég varð vitni að áðan.

Ég fór að senda pakka áðan, var inni í 10 mínútur og þegar ég kom út var æstur múgur af stúdentum búinn að hertaka götuhornið beint fyrir framan pósthúsið. Það er stúdentaverkfall í gangi hérna, af því að ríkisstjórnin er að hóta að setja á skólagjöld og planar feita niðurskurði í háskólakerfinu. Háskólakerfið er búið að vera lamað í nokkrar vikur. Allavegana, þegar ég kom út af pósthúsinu var óeirðalöggan að reyna að leysa upp múginn. Þetta voru kannski 100-200 manns, s.s. enginn risamúgur, en löggan var greinilega vel stressuð, þeir veigruðu sér ekki við að nota ofbeldi og piparsprei. Nokkrir höfðu greinilega fengið góðan skammt af spreii og sátu á gangstéttinni meðan félagar þeirra hlupu um til að redda vatni til að skola það úr augunum. Ég komst að því þarna að hópurinn var að flytja sig milli götuhorna til að hertaka þau. Þetta var greinilega hinn mesti eltingaleikur, allt í einu tók hópurinn sig til og hljóp af stað í áttina að næsta horni og löggan upp í bílana og á eftir. Seinna, á ferðinni annars staðar í hverfinu, hitti ég hópinn fyrir aftur og með lögguna á hælunum. Ég heyrði líka að löggan væri að senda óeinkennisklæddar löggur inn í þessa mótmælahópa til að vísa síðan óeirðalöggunni á þá.

Ákkurat núna er ég að horfa á heimildarmynd um mótmælin, hún byrjaði einmitt þegar ég byrjaði að skrifa þetta. Það er greinilega ýmislegt búið að ganga á. Það er búið að hertaka embættisskrifstofur út um allan bæ, sem náði hápunkti þegar ráðhúsið sjálft var hertekið. Hópar af stúdentum hlupu naktir gegnum jólamarkaði og verslunarmiðstöðvar, og einn hópur af stelpum klæddi sig upp sem hórur til að vekja athygli á erfiðleikum stúdenta til að fjármagna námið.

Yrði þetta gert heima, myndu allir háskólar í Reykjavík taka sig saman og fara í verkfall, nemendur sem og kennarar? Er samhugurinn og baráttuviljinn hjá íslenskum stúdentum nógu mikill?

Disney moves to Germany - Ingo revives Bambies mother

Monday, December 8th, 2003

Vá langt síðan síðast! Reyndar ekki alveg, ég er búinn að vera duglegri að bauna á læsta partinn af síðunni.

Jólin nálgast, sem þýðir að það styttist í að ég fljúgi til Boston. Þar var víst bylur í gær, vonandi kemst ég! Þar eyði ég jólum og áramótum með familíunni minni heima hjá stóru sys. Svo á að nota tækifærið og kíkja á New York, enda fyrsta skiptið sem maður kemur til USA, um að gera.

Ísland verður að bíða, væntanlega þangað til næsta sumar. Þeim sem meika ekki tilverun án mín í hálft ár í viðbót er hér með boðið í heimsókn til Berlínar ;-)