Archive for September, 2003

Þrífætlingur

Monday, September 29th, 2003

Jæja, þessi ritdeila er komin í fullt swing og núna er ég búinn að sitja sveittur í nokkra tíma og skella saman einni animation til að sýna hvernig ég sé þetta fyrir mér (fyrir þá sem hafa ekki hugmynd um hvað ég er að tala um, fariði þá hingað: http://borgar.undraland.com)

image

Smelliði á myndina til að sækja quiktime skrá, c.a. 1,7MB.

Mr Optimistic

Monday, September 22nd, 2003

Til að halda upp á það að Borgar skuli vera búinn að setja upp FTP aðgang á serverinn aftur (VÍÍ!) þá ætla ég að sýna ykkur eina mynd sem ég gerði fyrir stuttu og er dáldið ánægður með.

image

Nýja trademarkið mitt ;-) Finnst ykkur hann ekki jákvæður?

Langweilig!

Monday, September 22nd, 2003

Merkilegt hvað lífið getur verið viðburðarlítið, langdregið og leiðinlegt þegar maður er blankur! Af hverju þarf þessi faktor að stýra manni svona geðveikt!? Þegar ástandið er eins og það er hjá mér núna; maður þarf að plana hverja máltíð, kaupa alltaf það ódýrasta og horfa í hvern bjór og hugsa "fyrir þennan gæti ég keypt mér SVONA mikið pasta!", þá fer lífið á netta pásu. (nánast) Allt sem maður tekur sér fyrir hendur sér til skemmtunar kostar peninga. Maður sparar mest og eyðir minnstu ef maður kaupir byrgðir af einhverjum hræódýrum mat og fer ekkert út fyrir hússins dyr. Þannig kemst maður í gegnum heilu vikurnar án þess að eyða einu centi (fyrir utan þessar 10-15€ sem maður eyddi í matarbyrðirnar) en dagarnir eru að sama skapi geðveikt viðburðalitlir. Þetta er pottþétt fín reynsla, enda hef ég ekki verið þekktur fyrir að fara vel með peninga, en ógeðslega þreytandi. Ég þoli það ekki þegar lífið snýst um peninga. Ég hef engan áhuga á að þéna einhvern sand af seðlum, ég skil t.d. ekki fólk sem hefur það að lífsmarkmiði að þéna sem mest. En, eins og ég sagði fyrir stuttu þá geta peningar veitt manni frelsi. Ég væri sáttur ef ég þyrfti ekki að telja hverja krónu og gæti leyft mér eitthvað án þess að hugsa í hvert skipti: "Jæja, best að borða bara hrísgrjón út mánuðinn!"

Gestabók

Saturday, September 6th, 2003

Ég ákvað að prófa gestabókarfídusinn á síðunni minni. Látið endilega ljós ykkar skína.