Hæ öll sömul!
Ég er auðvitað búinn að vera ófyrirgefanlega latur við skriftir upp á síðkastið og vil biðja þá sem nenna yfir höfuð að lesa þetta blaður mitt afsökunar á því. Ég var heima í tvær vikur og nennti ekki að skrifa neitt þá, en ég er núna búinn að vera hérna í rúmlega viku og hef enga haldbæra afsökun lengur aðra en þá að vera búinn að leggjast í leti og inniveru og slen síðan ég kom hingað út.
Ég er reyndar ekki búinn að sitja aðgerðalaus, heldur er ég búinn að nota tímann í að vinna frekar að öllu sem liggur fyrir af byrjuðum 3víddarverkefnum. Það er reyndar aðeins búið að skerast neðan af þeim langa lista af því að a.m.k einu heilu verkefni var sturtað niður í fríinu, þar sem allir harðir diskar í skólanum mínum voru formatteraðir í tiltekt sem þar átti sér stað. Þónokkurra klukkutíma vinna í súginn þar! Sem betur fer var þetta ekki það versta sem gat gerst, en svekkjandi þó. Þetta kennir manni bara eitt: BACKUP BACKUP BACKUP. Ég er reyndar búinn að læra þá lexíu oftar en einu sinni og oftar en tíu sinnum en vonandi situr hún í þetta skiptið.
Hérna sjáið þið skrifborðið mitt heima, kominn með Wacom teikniborð (vantar reyndar pennann ennþá (pirrr‼)) og skjá nr 2 (smella á myndina til að fá stærri útgáfu)
Enívei, ég er s.s. ekkert búinn að fara út enda algjör frumskógarveðrátta í gangi og ég svo heppinn að hebergið mitt er nánast alltaf í skugga og helst því tiltölulega svalt þrátt fyrir hitabeltisloftslagið úti við. Það hjálpar til við friðþæginguna þegar ég ákveð í letiskasti að fara ekkert út fyrir hússins dyr þann daginn. Verra er það hins vegar í vinnunni þar sem ég sat í gær í 12 tíma og gerði lítið annað en að svitna eins og göltur.
Fyrir þá sem hafa áhuga á slíku, þá á ég afmæli á laugardaginn og mun þá ná þeim merkis aldri 28 ára. Ég mun nota tækifærið og smala vinunum saman í létta grillveislu í lystigarði hér í hverfinu. Reyndar á ég afmæli á þeim skemmitlega tíma þar sem allir virðast alltaf vera í fríi einhverstaðar að spóka sig. Það verður þá bara fámennt en góðmennt í staðinn.
