International FUNK Show
Sunday, August 31st, 2003Dagurinn í gær var áhugaverður að vissu leiti en að flestu öðru sökkaði hann bigtime. Ég var að vinna fyrir SAE á IFA (Internationale Funkausstellung). Það útaf fyrir sig hljómar ekkert illa, og þegar ég bæti við þeirri staðreynd að ég fékk 50% meira á tímann en venjulega hljómar það varla verr. Reyndin var sú að ég var geðveikt illa sofinn (og nei ég var ekki að djamma daginn áður!) og hávaðinn þarna var nóg til að gera hörðustu ræflarokkara geðveika. Við vorum í Digital Music deildinni (af því að upphaflega og aðallega var og er SAE hljóðmannaskóli (School of Audio Engineering)) þannig að beint á móti básnum okkar var standur með DJ græjum og þýskt UltraTecho á fullu blasti allan daginn og hinum megin við þilið voru Casio rafmagnspíano sem allir máttu glamra á, NB ekki með heyrnartólum. Ofan á UltraTechnóið bættis semsagt Für Elise og Gamli Nói! Til að toppa kakóföníuna tóku Sebastian og René, samstarfsmenn mínir, upp á því að semja lag á Logic græjuna sem þeir voru með uppsetta, and you guessed it: Techno. Þeir fundu einhvern sniðuga trommulúppu sem hljómaði ágætlega til að byrja með en þið getið ímyndað ykkur hvort hún hljómaði vel við 350ugustu endurtekningu 6 tímum seinna. S.s. hrein geðveiki! Svo var ég ekki að gera jackshit þarna yfir höfuð. Eina tölvan sem ég var með var ónetengdur I-makki með Photoshop og á honum voru 3 jpg myndir sem ég endaði með að eyða hálfum deginum í að fokka með í Photoshop. Ekkert 3víddarforrit! Þá hefði maður a.m.k. getað búið til sitt eigið myndefni og tíminn hefði kannski liðið aðeins hraðar.
Dagurinn í dag er hins vegar að sjálfsögðu betri, sunnudagar eru alltaf góðir. Búinn að fá gott óverdós af koffíni og fer svo á eftir og deyfi þau áhrif með ódýrum bjór.. ahh.
