Archive for July, 2003

Heim á leið

Thursday, July 17th, 2003

Hæ, ég er í þann mund að kveðja Berlín. Kl 09.40 í fyrramálið fer vél í loftið frá Shönefeld flugvelli, með mig innanborðs, vonandi! Þá er ferðinni heitið til London, þar sem ég eyði morgundeginum með litlu systur og svo tökum við vél frá Stanstead annað kvöld og ég verð kominn til landsins c.a. hálf tíu. Þá er bara að setja sig í stellingar!

Hanski

Sunday, July 6th, 2003

Hérna er smá sýnishorn af því sem ég er að dunda við þessa dagana. Smellið á myndina til að sjá hana í fullri stærð.

Hanski

Þetta er partur af drekaverkefninu mínu, þ.e.a.s. verður partur af bakgrunni í örmynd sem ég að vinna að. Hanskann gerði ég í gær og fyrradag í vinnunni, svona þegar ég hafði tíma til að setjast niður, sem gerist sérstaklega oft á laugardögum.

Mig langaði að sýna ykkur hann svona glansandi og fínan, en hann verður beyglaður, ryðgaður og skítugur í sinni endanlegu mynd. Þetta er dæmi um það skemmtilegasta sem ég geri í 3vídd, þ.e.a.s. þegar maður módelar hlut og sér strax góða útkomu án þess að þurfa að eyða 2 vikum í eitthvað fikt.

Búið spil.

Wednesday, July 2nd, 2003

Btw, ég tapaði aftur. Þar sem við erum bara þrjú í riðlinum þýðir það aðeins eitt, þ.e.a.s. að ég er dottinn út og spila s.s. ekki meiri skák í bili, eða ok sennilega aldrei aftur ;-). Aumingjatitillinn er hér með staðfestur. Helvítis!

Heima er best...

Wednesday, July 2nd, 2003

Jæja kominn aftur til Berlínar. Dvölin lengdist aðeins, upphaflega var planið að koma á þriðjudaginn 24. en ég endaði með að koma á sunnudeginum 29. Vægast sagt frábært, hátiðin sem og chillið á eftir. Fór á geðveika Radiohead, Counting Crows, Coldplay, Supergrass, Sigur-Rósar og Massive Attack tónleika á Southside hátíðinni. Verð að segja að heildarfílingurinn var betri en öll þau skipti sem ég fór á Hróarskeldu. Svo chillaði ég í Pfullendorf hjá Thomasi og við spiluðum tónlist og djömmuðum. Næsta verkefni er svo að undirbúa komu mína til Íslands 18. júlí. Þið getið s.s. merkt við þann dag í dagatalinu og byrjað að hlakka til.