Jæja, núna er undirbúningur í fullum gangi fyrir för mína til suður-þýskalands á miðvikudaginn. Fyrst stíg ég upp í ókunnuga bifreið og borga einhverjum gaur 30 fyrir að keyra mig til Stuttgart (s.s. gegnum svona farþegamiðlun). Svo þegar ég kem þangað hoppa ég upp í annan bíl hjá vini Thomasar (sem ég er að fara að heimsækja) og hann keyrir mig heim til Tom (ég veit ekki einu sinni hvar hann á heima nákvæmlega!). Við dettum síðan í það og spilum tónlist saman og svo loks er ferðinni heitið á Southside festivalið í næsta nágrenni. Þar er prógrammið ekki af verri endanum: Radiohead, Live, Coldplay og Counting Crows svo dæmi séu tekin, að ógleymdum GusGus og Sigur-Rós. Svo að lokinni hátiðinni verður chillað og meiri tónlist spiluð og svo held ég aftur heim á leið. mmmm…
Hey! Bannað að glenna framan í vini sína. Nú vil ég líka fá... :'-(
En gaman. Næstum eins og eg nema eg er ad vinna a fullu... Og ad fara i skolann... Hmm thu ert sennilega med betri skemmtanastjora en eg. En allavegana tha for eg a Public Enemy tonleika um helgina... Thad var massa cool oldschool.
Ekkert væl, bara drífa sig yfir og kíkja með!